Tilgangur:
Umhverfisstefna Netvöktunar er sett fram til að leggja áherslu á umhverfissjónarmið og tryggja að þau séu höfð að leiðarljósi í daglegum rekstri fyrirtækisins. Netvöktun vill leggja sitt af mörkum í þágu sjálfbærrar þróunar.
Umfang:
Umhverfisstefnan tekur til allrar starfsemi Netvöktunar. Starfsmenn Netvöktunar skulu kynna sér efni hennar, framfylgja henni sem og leita leiða til umbóta í umhverfismálum. Framkvæmdarstjóri Netvöktunar ber ábyrgð á umhverfisstefnu og skal tilnefna umhverfisnefnd sem sér um eftirfylgni og endurskoðun. Allir starfsmenn Netvöktunar bera ábyrgð á að framfylgja umhverfisstefnu, kynna sér hana og móta hana áfram til framtíðar.
Stefna:
Netvöktun skuldbindur sig til að fylgja öllum lagakröfum á sviði umhverfismála og hafa umhverfismál til hliðsjónar í öllum rekstri Netvöktunar. Með umhverfisstefnunni skuldbindur Netvöktun sig til að vinna markvisst að því að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif fyrirtækisins og hafa jákvæði áhrif á nærsamfélagið á sviði umhverfismála. Framtíðarstefnumótun og þróun fyrirtækisins mun taka mið af vistvænni nálgun. Í starfsemi Netvöktunar verður tekið tillit til hagkvæmrar notkunar aðfanga og tækjabúnaðar, og endurnýtingar og endurvinnslu til að takmarka umhverfisspor fyrirtækisins. Áherslur fyrirtækisins varða bæði innra starf Netvöktunar sem og ytri áhrif fyrirtækisins.
Leiðir:
Við höfum metnað til að hafa umhverfismál til hliðsjónar í öllum rekstri Netvöktunar. Starfsemi og reksturinn séu til sóma og öðrum góð fyrirmynd.
Innri þættir Netvöktunar: Í öllum rekstri fyrirtækisins og háttsemi starfsmanna verður reynt, eins og kostur er, að stuðla að umhverfisvænum háttum.
Ytri áhrif Netvöktunar: Netvöktun mun reyna að hafa áhrif til góðs á viðskiptavini og nærsamfélagið, til að hvetja til umhverfisvitundar og umræðu um vistvænan rekstur. Það verður gert með forvörnum og fræðslu, styrkjum, beinum aðgerðum og upplýsingagjöf. En ekki síður með því að starfsmenn og rekstur fyrirtækisins sé öðrum góð fyrirmynd.
- Innkaup fyrirtækisins og rekstur taka mið af umhverfissjónarmiðum þar sem því er komið við
- Efla umhverfisvitund starfsmanna og hvetja starfsmenn til að bera virðingu fyrir umhverfinu
- Orkunotkun verður haldið í lágmarki og leitast við að draga úr mengun
- Endurnýta og endurvinna það sem fellur til í rekstrinum og farga öðru með viðeigandi hætti
- Leitast er við að hafa jákvæð áhrif á nærumhverfið með forvörnum og upplýsingum og vera fyrirmynd á sviði umhverfismála
- Að öll vöruþróun sé unnin með hliðjón af umhverfivænni viðskiptum
Sett verða fram markmið um árangurinn í mælaborði stjórnenda. Umhverfisvísar og árangur verða birt árlega í ársskýrslu.